Bartímeus blindi

Hlusta1 mín

Þegar Jesús og lærisveinar hans voru á leiðinni út úr Jeríkóborg sáu þeir mann sem hét Bartímeus, sitja við vegkantinn. Hann var blindur og það eina sem hann gat gert sér til lífsviðurværis var að betla. Þegar hann heyrði að þar færi Jesús frá Nasaret, tók hann að hrópa:„Jesús! Miskunna þú mér!“

Margir höstuðu á hann og sögðu honum að þegja en hann hrópaði því meir: „Jesús! Miskunna þú mér!“

Jesús nam staðar og bað lærisveinana að leiða hann til sín. Þeir kölluðu á blinda manninn og sögðu við hann:

„Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.“ Þeir hjálpuðu honum til Jesú.

Jesús spurði hann: „Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“

Blindi maðurinn svaraði honum: „Herra minn, að ég fái aftur sjón.“

Jesús sagði við hann: „Far þú, trú þín hefur bjargað þér.“ Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum þaðan í frá.

Bartímeus blindi