Sorgmæddur vinur
Kæru sérfræðingar.
Skólabróðir okkar missti pabba sinn um daginn. Venjulega tölum við mikið saman en núna vitum við ekkert hvað við eigum að segja við hann. Við vorkennum honum en okkur finnst eins og við kunnum ekki lengur að umgangast hann af því að hann er að ganga í gegnum svo mikla sorg. Hvað í veröldinni getum við gert?
Með von um hjálp.
Bekkjarfélagar







