Talar enga íslensku
Kæru sérfræðingar.
Ég flutti til Íslands síðasta vor og ég tala enga íslensku. Enskan mín er heldur ekki góð. Krakkarnir í bekknum tala aldrei við mig. Ég skil það svo sem því hvernig eiga þau að fara að því að tala við einhvern sem getur ekkert talað?
Ég vildi samt óska að það væri hægt að gera eitthvað í þessu því mig langar til að kynnast þessum krökkum og vera með í því sem þau eru að gera.
Með von um góð ráð,
Ade







