Hverju tókstu eftir?
Hvað sagði Páll Óskar?
Hvaða ráð gefur Páll Óskar varðandi spjallþræði samskiptamiðlana?
Ef fólk er að rífast á spjallþráðum samfélagsmiðlanna, horfðu hlutlaust á það og spurðu þig; vil ég vera þarna? vil ég fara inn í þessa orku?"
Hvað gerir hann til þess að halda í eigin frið í þessu samhengi?
Hann fer ekki inn á spjallþræðina og tekur ekki þátt í þessu.
Hvers vegna er það honum mikilvægt?
Hann vill vernda tilfinningar sínar og orku. Rifrildi á samfélagsmiðlunum mega ekki skemma fyrir honum þá orku sem hann þarf til þess að fara upp á svið og fá fólk til þess að dansa.
Hvað getur þú gert til þess að efla eigin frið?
Veldu: Taka ekki þátt í rifrildum eða öðrum leiðindum á samfélagsmiðlum. - Vera ekki inni á samfélagsmiðlum. - Annað? Hvað?






