Ljótar athugasemdir á netinu
Kæru sérfræðingar.
Ég fæ stundum mjög ljót „comment“ á samfélagsmiðlunum frá krökkum sem ég þekki.
Það er eins og þeim finnist allt í lagi að segja hvað sem er við mig inni á netinu.
Ég svara oft líka á móti og segi þá margt ljótt, sem ég veit að gæti verið særandi.
Það eru margir að lenda í þessu sama. Ég vildi að þetta væri ekki svona.
Getið þið gefið mér ráð?
„TÁR“







