Adam var ekki lengi í Paradís

Adam var ekki lengi í Paradís

„Lára mín af hverju ertu svona leið?“ Um leið og pabbi hafði sagt þetta strauk hann yfir hausinn á mér – eins og ég væri köttur eða eitthvað. Ókei, ég veit alveg að hann meinti það vel.

„Ég er ekki köttur,“ sagði ég og sneri hausnum á mér þannig að pabbi hætti að klappa mér.

„Fyrirgefðu, ég vildi nú bara vera góður við þig. En fyrst og fremst vil ég fá að vita af hverju þú ert svona döpur. Er eitthvað mikið að?“

„Sorrý, nei það er svo sem ekkert mikið að – ekki þannig. Ég er bara fúl út af leiknum.“

„Æi, töpuðuð þið?“ Nú kviknaði sko alvöru áhugi hjá pabba því ef hann hefur einhvern áhuga á einhverju þá eru það íþróttir.

„Já en það var ekki það versta.“

„Nú? Hvað er verra en að tapa? Eða, ég veit svo sem að það er margt verra en að tapa en …“

„Við vorum komnar í þrjú núll eftir korter.“

„Og?“

„Adam var ekki lengi í Paradís, þær jöfnuðu fyrir hálfleik og skoruðu svo sigurmarkið rétt fyrir leikslok.“


Orðatiltækið Adam var ekki lengi í Paradís er úr Fyrstu Mósebók 3.kafla.