Miskunnsami Samverjinn
Eitt sinn fór maður um veginn sem liggur frá Jerúsalem til Jeríkó. Á leiðinni réðust ræningjar á hann. Þeir rifu fötin utan af honum, rændu hann og börðu til óbóta. Þeir stungu síðan af og skildu manninn eftir við vegkantinn, nær dauða en lífi.
Prestur nokkur fór um sama veg.
Þegar hann sá manninn strunsaði hann yfir á hinn vegkantinn og flýtti sér fram hjá. Og sama gerði aðstoðarmaður hans sem fór um veginn skömmu síðar. Hann forðaði sér þegar hann sá hvers kyns var.
Um þennan veg fór líka Samverji nokkur. Hann sá manninn liggja særðan á veginum og fann sárlega til með honum þar sem hann lá í blóði sínu, einn og yfirgefinn.
Hann gekk til hans, batt um sár hans og hlúði að honum. Síðan lyfti hann honum upp á asna sinn og fór með hann á gistihús og lét sér annt um hann.
Næsta dag rétti hann gestgjafanum tvo silfurpeninga og sagði við hann: „Hugsaðu vel um hann. Og ef það kostar meira en þetta þá borga ég þér á bakaleiðinni.“
