Jólaguðspjallið
En svo bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
Jósef og María þurftu að fara frá borginni Nasaret til Betlehem til að láta skrásetja sig en María var þunguð og að því komin að fæða barnið. Þar sem ekkert pláss var fyrir þau í gistihúsi urðu þau að gista í fjárhúsi.
Um nóttina fæddist barnið.
María vafði það reifum og lagði í jötu.
Þessa nótt voru hirðar úti í haga. Skyndilega stóð engill Drottins hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði í kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks; Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“
Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu: „Dýrð sé Guð í upphæðum og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnunum.“
