Krossfesting og upprisa
Hermenn fóru með Jesú á stað sem heitir Golgata. Þar krossfestu þeir hann ásamt tveimur ræningjum.
Fólk hafði safnast saman og það hrópaði: „Ef þú ert sonur Guðs skaltu stíga niður af krossinum.“
Jesús horfði á þau og sagði:
„Faðir, fyrirgef þeim því þau vita ekki hvað þau eru að gera.“
Annar ræningjanna hæddist að honum og sagði; „Ertu ekki Messías, sonur Guðs? Ef svo er ættirðu að geta stigið niður af krossinum og síðan hjálpað okkur!“
En hinn ræninginn sagði: „Þú getur ekki kvartað! Þú hefur fengið refsingu fyrir þína glæpi. En þessi maður er saklaus. Hann hefur ekki gert neinum illt.“
Svo sagði hann við Jesú: Jesús! Mundu eftir mér þegar þú kemur í ríki þitt.“
Jesús horfði á ræningjann og sagði:
„Strax í dag verður þú með mér í Paradís.“
Um miðjan dag varð myrkur í öllu landinu og stóð það yfir í þrjár stundir. Jesús hrópaði hárri röddu:
„Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn.“ Þegar hann hafði sagt þetta gaf hann upp andann.
Eftir að Jesús dó var hann lagður í gröf sem höggvin var í klett. Síðan var stórum steini velt fyrir grafaropið.
Þremur dögum eftir dauða Jesú fóru nokkrar konur að gröfinni. Þetta voru þær María Magdalena, Jóhanna, María móðir Jakobs og nokkrar aðrar.
Þegar þær komu að gröfinni sáu þær að steininum hafði verið velt frá grafaropinu.
Þær litu inn í gröfina en hún var tóm.
Allt í einu stóðu hjá þeim tveir englar í skínandi klæðum. Konurnar urðu svo hræddar að þær þorðu ekki einu sinni að líta á þá. En englarnir sögðu við þær:
„Jesús er ekki hér. Hann lifir! Munið þið ekki eftir því sem hann sagði? Að hann yrði krossfestur og myndi síðan rísa upp frá dauðum þremur dögum síðar?“
Þegar konurnar litu upp voru englarnir farnir.
Nú máttu þær engan tíma missa. Þær ruku af stað í hendingskasti til borgarinnar. Þær urðu að segja lærisveinunum frá því sem þær höfðu séð og heyrt.
