Byggt á bjargi og sandi
Einu sinni voru tveir menn sem ætluðu báðir að byggja sér hús. Annar maðurinn sagði við sjálfan sig: „Kannski ég byggi hérna í sandinum.“
Svo hófst hann handa við að reisa húsið. Þá skall á vont veður. Rigning og rok lamdi húsið að utan og sandurinn varð fljótt rennandi blautur og fór allur að hreyfast til. Vegna þess hve sandurinn var laus í sér, rann húsið af stað og hrundi um koll.
Hinn maðurinn ákvað að byggja húsið sitt á sterku bjargi. Það var seinlegt að bora holur niður í hart bergið. En það þurfti hann að gera til þess að tryggja að húsið stæði fast. Síðan reisti hann húsið. Það var traust og öruggt á klettinum. Nú skall á vont veður. Rigningin lamdi húsið að utan og vindar blésu en maðurinn sat rólegur inni í húsinu sínu. Hann var bæði rólegur og öruggur því húsið stóð fast á klettinum.
