Fátæka ekkjan sem gaf
Jesús og lærisveinar hans voru staddir í musterinu. Musteri er eins og kirkja. Þar var fjárhirsla þar sem fólk gat komið og gefið pening til musterisins.
Jesús settist beint á móti fjárhirslunni og fylgdist með fólkinu leggja peninga í hana.
Margir auðmenn lögðu mikla peninga í hana. En þangað kom líka fátæk ekkja. Hún setti tvo smápeninga í söfnunina.
Jesús kallaði lærisveinana til sín og sagði við þá: „Þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir sem lögðu pening í fjárhirsluna.“ Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti. Alla björg sína.“
