Sköpunin

Hlusta1 mín

Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Jörðin var þá auð og tóm. Myrkur grúfði yfir djúpinu en andi Guðs sveif yfir vötnunum. Þá sagði Guð: „Verði ljós!“ Og það varð ljós. Guð sá að ljósið var gott og Guð greindi ljósið frá myrkrinu. Guð nefndi ljósið dag en myrkrið nótt.

Guð skapaði himingeiminn, stjörnur, tungl og sól. Guð skapaði jörðina, höfin, vötn og læki, gróður, lífverur í sjó, lofti og landi og Guð skapaði fólkið. Guð treysti því til að hugsa vel um jörðina og hlúa að öllu lífi. Og Guð leit yfir sköpun sína og sá að hún var góð.

Sköpunin