Talenturnar

Hlusta1 mín

Ríkur maður var að fara til útlanda. Þar ætlaði hann að dveljast um nokkurn tíma. Hann kallaði á þjóna sína og bað þá um að gæta peninganna sinna á meðan. Slíkir peningar voru kallaðir talentur.

Hann ákvað að láta fyrsta þjóninn fá fimm talentur. Næsta tvær og þann þriðja eina. Svo fór hann úr landi.

Fyrsti þjónninn lagði á sig mikla vinnu til að tvöfalda fjárupphæðina. Það gerði sá næsti einnig. En sá þriðji sem hafði fengið eina talentu, gróf hana bara í jörð svo hún týndist ekki.

Þegar ríki maðurinn kom heim frá útlöndum komu allir þjónarnir fram fyrir hann og afhentu honum talenturnar.

Ríki maðurinn varð mjög ánægður þegar hann sá hvað fyrstu tveir þjónarnir höfðu staðið sig vel.

Hann sagði við þá: „Yfir litlu voruð þið trú, yfir mikið mun ég setja ykkur.“ En hann var ekki eins glaður þegar hann sá að þriðji þjónninn hafði bara grafið sína talentu í jörð og ekki gert neitt með hana.

Talenturnar