
Um flokkinn Menningarlæsi
Kristni hefur, með margvíslegum hætti, haft mótandi áhrif á menningu þjóða víða um heim. Í þessum hluta vefsins er sérstaklega litið til þess hvernig þau áhrif hafa verið hér á landi. Hér er þó einnig fjallað um það hvernig kristnin hefur haft áhrif á bókmenntir og aðrar listgreinar. Þegar kemur að bókmenntaþættinum má sjá hve stóran sess Biblían hefur innan heimsbókmenntanna. Hér má finna fjölbreytilegan og forvitnilegan fróðleik um áhrif kristninnar á fornbókmenntir Íslendinga, þjóðsögur og álfatrú svo fátt eitt sé nefnt.