Mestur í heimi

Árið 1891 kom út á Íslandi kverið Mestur í heimi og var Björn ritstjóri Jónsson (1846-1912) þýðandinn, Björn var einnig alþingismaður og um skeið ráðherra. Hér var komin út bók á íslensku sem var aðeins árgömul því The Greatest Thing of All eftir skoska náttúrvísindamanninn Henry Drummond (1851-1897) kom út 1890. Reyndar höfðu þessir fyrirlestrar birst áður óformlega eða frá því upp úr 1880 – en á bók komu þeir fyrst formlega 1890. Drummond var meðlimur í The Free Church of Scotland, kirkju sem var lifandi frá árinu 1847 til 1900 en þá rann hún inn í aðra fríkirkju og svo liðaðist sá söfnuður að endingu að stærstum hluta inn í The Church of Scotland árið 1929.

Drummond var afar áberandi í Skotlandi sem fyrirlesari og rithöfundur og voru trúarleg rit hans þýdd á fjölda tungumála. Lengst af starfaði Drummond sem kennari í jarðfræði og öðrum náttúrvísindum við Free Church College sem var nátengdur University of Glasgow.

Í ritinu Mestur í heimi er Drummond að fást við kærleikshugtakið. Það er sem sagt, að hans mati, kærleikurinnsem er mestur í heimi. En tvíræður titillinn vísar auðvitað einnig til frelsarans. Ígrundun Skotans beinist að og sprettur úr 13. kafla fyrra bréfs Páls postula til Korintumanna. Drummond telur að guðlegur kærleikur innihaldi níu þætti: þolinmæði, góðvild, örlæti, auðmýkt, kurteisi, óeigingirni, gott skap og einlægni/hreinskilni. Að mati Drummonds er kristindómurinn sannasta lífsheimspeki sem nokkru sinni hefur verið lögð fram. En jafnframt áminnir Drummond okkur um að við þurfum að vera alveg viss um það að þegar við tölum um kristindóm, þá meinum við kristindóm Krists. Aðrar útgáfur eru annað hvort afbökun, ýkjur, misskilningur eða yfirborðskennd og skammsýn túlkun. Í flestum tilfellum er árangurinn vonlaus og afleiðingarnar hörmulegar. 

Þetta er alltaf gott að hafa í huga og ekki síst á síðustu tímum þar sem ýmis andleg hjálpartæki eru í boði – jafnvel undir því fororði að um kristna speki sé að ræða.

Rétt eins og samtímamenn Drummonds nutu uppörvandi orða hans, þá bera fjölmargir, bæði prestar og leikmenn enn hlýjar taugar til skrifa Drummonds. Það er vel þess virði að lesa þessa bók, hún auðfundin á íslenskum fornbókasölum – og erlendum og þá á ensku. Eins er hana að finna á netinu á frummálinu. Og auðvitað er greiður aðgangur að henni á bókasöfnum – þótt hún sé komin til ára sinna. Mestur í heimi ber nafn með rentu — bókin miðlar visku kærleikans af hlýju og hreinskilni.