Hlusta·1 mín

Rauðmaginn, grásleppan og marglyttan
Einu sinni var Kristur að ganga niður í fjöru og var Pétur postuli með honum í gönguferðinni. Allt í einu hrækti Kristur í sjóinn og breyttist hrákinn í grásleppu – og þannig varð hún til. Þá fór Pétur að skyrpa og útkoman úr því varð rauðmaginn. Djöfullinn hafði verið að fylgjast með þeim og labbaði dáltíðið á eftir þeim, hann ákvað að hrækja líka og sjá hvað kæmi út úr því. Það gerði hann og úr því varð marglytta. Þannig urðu þessar tegundir til.