Allra heilagra messa er kristinn helgidagur – en nánast algjörlega sem slíkur bundinn við kaþólsk lönd. Þetta er minningardagur píslarvotta og messudagur þeirra fjölmörgu helgu manna og kvenna í kristnum sið sem ekki eiga sér eigin messudag.
Íslendingar halda ekki upp á allra heilagra messu og heldur ekki allra sálna messu en það var vitaskuld gert hér fyrir siðbreytingu en er löngu aflagt. Allra heilagra messa er haldin 1. nóvember en allra sálna messa var í upphafi sett á 2. nóvember. Í dag, þegar eitthvað er gert með þessa daga hérlendis, er þeim yfirleitt slegið saman.
Kvöldið fyrir allra heilagra messu nefnist á enskri tungu Halloween, sem við upp á íslensku köllum hrekkjavöku, en hún er sem sé haldin þann 31. október. Hrekkjavakan hefur verið að festa sig i sessi hér á landi sem skemmtidagur í líkingu við það sem gerist í Bandaríkjunum. Krakkar fara þá í búninga og sníkja nammi í húsum og færst hefur í vöxt að fullorðnir taki þátt með því að skreyta hús sín og gera þau dularfull eða jafnvel hræðileg að sjá og mjög margir skera út grasker.
GB