Altaristafla Nínu Tryggvadóttur í Skálholti

Skálholt/altaristafla

Þegar leið á 20. öldina fengu Íslendingar afar merkar listakonur sem jafnvel töldust vera á heimsmælikvarða.

Nína Tryggvadóttir var ein þeirra. Hún var fædd á Seyðisfirði árið 1913. Aðeins tvítug að aldri hóf hún nám í listmálun hjá listmálurunum Finni Jónssyni og Jóhanni Briem. Fimm árum síðar lagði hún land undir fót og flutti til Kaupmannahafnar. Þar stundaði hún frekara listnám til ársins 1939. Nína var þó ekki hætt að læra og fór vestur um haf í frekara listnám.

Mósaík og vatnslitamyndir eru einkennandi fyrir myndverk Nínu. Eitt þekktasta verk hennar er tilkomumikil altaristafla í Skálholti. Hún var sett upp í kirkjunni árið 1966. Á vef Skálholts segir: „Nína gaf sér góðan tíma til að vinna myndina, kom oft í Skálholt til að fá innblástur og var í nánum samskiptum við Sigurbjörn Einarsson biskup varðandi endanlega útfærslu verksins.“

Í verkinu birtist hinn upprisni Kristur. Það er eins og hann brjóti vegginn yfir altarinu og stígi inn í kirkjuna með útbreiddan faðminn og bjóði kirkjugestum að koma til sín. Litir töflunnar gefa til kynna íslenskt landslag, en það virðist vera algengt stef í gerð altaristaflna hér á landi að færa hið guðlega nær með þeim hætti.

Nánar má lesa um Nínu Tryggvadóttur í ritinu Andans konur sem gefið var út af Listasafni Árnesinga árið 2009. Eins má finna upplýsingar um fleiri íslenskar listakonur og altaristöflur þeirra á kirkjubladid.is.

Meira um Skálholtsdómkirkju.