Í bókinni Bati frá tilgangsleysi tekst höfundurinn séra Bjarni Karlsson á við margar flóknar spurningar – eða öllu heldur aðstæður – sem nútímamaðurinn stendur frammi fyrir. En í grunninn er þessi bók trúboð því hún bendir á lausn fagnaðarerindisins í nokkrum liðum; samstarf eða samvinnu, jöfnuð og andóf gegn kúgandi yfirvaldi. En um leið er þetta vakningarbók því hún er að reyna að vekja nútímamanninn frá þeim blundi sem hefur fært hann út á jaðar mennskunnar; einangrað hann og skilið eftir einmana – og þá er í raun stóra spurningin hvort maðurinn hafi ekki skilið sjálfan sig eftir einmana? Bjarni bendir á skeytingarleysið sem orsakavald í þessu öllu saman enda aldrei langt í skeytingarleysið þegar tilgangsleysið leikur lausum hala.
Auk þess að tefla fram fræðimönnum úr ólíkum áttum til þess að greina ástandið notast höfundurinn líka við skáldskap sem greiningartæki. Nánar til tekið Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness. Hið vanvirka, eða kúgaða og því vanvirka, samfélag Sumarhúsa verður að einskonar samfélagsmynd nútímans í meðförum Bjarna, viðmið eða heimastöð sem hann notar til að máta kenningar sínar (og annarra) við. Þetta gengur ljómandi vel upp.
Þrátt fyrir að orðið „bati“ sé í titli er þetta ekki hefðbundin sjálfshjálparbók. Þetta er miklu frekar eitthvað sem kalla mætti „holl lesning“ – og þá hverjum sem er; þeim sem þjást undan og í nútímasamfélaginu en ekki síður þeim sem hafa komið sér vel fyrir í því og hafa gleymt tilgangi lífsins.
Það sem skín samt í gegn og gefur von er trúarvissa höfundarins. Bjarni sér ljósið og nær að veita þeirri sýn til lesandans með snjöllum hætti.
Skálholtsútgáfan gaf út árið 2023.