Sálgæsla

Um flokkinn Sálgæsla

Fæst okkar komumst í gegnum lífið án þess að mæta sorg eða áföllum. Í þessum þætti, Sálgæsla, má finna fjölda viðtala við fólk sem vinnur við sálgæslu innan kirkjunnar, í fangelsum eða á sjúkrahúsum. Sálgæslan er hluti af þjónustu kirkjunnar. Hún er ókeypis og öllum opin. Hér er rætt um hin fjölmörgu andlit sorgarinnar og viðbrögð við henni. Viðmælendur okkar koma úr sérþjónustu kirkjunnar, en einnig af Landspítalanum en þar starfa bæði sjúkrahúsprestar og djáknar. Einnig er talað við presta, djákna og organista sem starfa í söfnuðum.