Koffortið hennar Korku

Um sorgartöskuna:

Á leikskólaaldri eignast sum börn sína fyrstu persónulegu reynslu af dauðanum, jafnvel í nánustu fjölskyldu. Stundum eru það gæludýr sem þau missa en svo er það þannig að náttúran og umhverfið kallar fram spurningar um dauða, missi og minningar. Allt kallar þetta fram á samtal og úrvinnslu. Mörg okkar forðast umræðu um sorg og missi því við vitum ekki alltaf hvað við eigum að segja, hvernig við orðum hlutina, óttumst að segja eitthvað "rangt": Þessi sorgartaska hjálpar einstaklingum, leikskólum, skólum og kirkjustarfi að nálgast börnin með opnum huga og til að takast á við upplifun og reynslu þeirra og  svara spurningum þeirra.

Sorgartaskan inniheldur fimm barnabækur, 5 umræðuspjöld, 8 tilfinningaspjöld, eina sorgarskikkju, Korku (bangsann), veggspjald, hefti með fróðleik um börn og sorg og hefti með tillögum að verkefnum.

Þýðing verkefnis og aðlögun var í höndum sr. Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur í Borgarnesi.


Hvar nálgast ég efnið?

Þú getur keypt einstakar bækur eða efnið í heild sinni í Kirkjuhúsinu:
https://kirkjuhusid.is/products/sorgartaska-koffortid-hennar-korku


Aukaefni:

Hér er hægt að prenta út litabókamyndirnar sem eru að finna í meðfylgjandi verkefnahefti:
https://knirke.com/farvselv-tegninger/

Hér geturðu séð kennsluhefti koffortsins "Fróðleikur og innblástur"

Uppsskrift ef þú vilt hekla Korku-bangsa:
Knirke_haekleopskrift.pdf