Sár græða sár

Sár græða sár eftir Vigfús Bjarna Albertsson er bók sem fellur í flokk „sálgæslubókmennta“ – þetta er ekki sjálfshjálparbók í strangasta skilningi þess hugtaks en vissulega getur bókin hjálpað lesanda sínum ríkulega.

Sár græða sár er sjálfstætt framhald bókarinnar Hver vegur að heiman er vegur heim eftir sama höfund, en rétt er að benda á að það er alls ekki nauðsynlegt að hafa lesið þá bók til þess að geta notið þessarar. Séra Vigfús Bjarni hefur afar mikla reynslu af sálgæslustörfum, hann var í áraraðir sjúkrahúsprestur og eins hefur hann starfað hjá Þjóðkirkjunni við sálgæslu. Reynsla hans vegur þungt í Sár græða sár en í raun er höfundur að bjóða lesanda með sér í lærdómsferð í bókinni.

Efnið talar til allra, hvort heldur eru leikir eða lærðir, fjölskyldur eða fagstéttir. Í bókinni er Vigfús þó fyrst og síðast að tala til þeirra sem syrgjandi eru.


Varpað er fram erfiðum spurningum, en um leið og við leitum svara við þeim, með hjálp höfundar, lærum við hvernig best er að bera sig að; okkur er kennd fagleg nálgun.

Í bókinni er komið inn á margvíslegar birtingarmyndir sorgar: sorg barna, áföll sem verða af  mannavöldum, harm fjölskyldna, sorg sem grefur um sig og varir í gegnum kynslóðir og samfélög. En til mótvægis við sorg og harm leggur Vigfús Bjarni sérstaka áherslu á von, sátt og fyrirgefningu; það að gera heilt.

Skálholtsútgáfan gaf Sár græða sár út árið 2025.