
Um flokkinn Trúarlíf
Markmið þessa þáttar er að styðja við þau sem hafa áhuga á að rækta trú sína með heilbrigðum og jákvæðum hætti. Mörg okkar leita til trúarinnar þegar erfiðleikar steðja að. Einnig er vel þekkt að fólk beri trú sína innra með sér og leiti til hennar í dagsins önn. Þessi þáttur er forvitnilegur fyrir þau sem hafa áhuga á að þroskast í trúnni og nálgast Guð. Hér má taka þátt í biblíulegri íhugun og fræðast nánar um það hvað það þýðir. Taka þátt í bænalífi og fræðast um það hvað felst í því að byggja sig upp í hollri og uppbyggjandi trú.