Í augnhæð: Hversdagshugleiðingar

Í þessari bók er lagt út af 52 ritningarstöðum, einum fyrir hverja viku ársins. Hugleiðingarnar sem spretta fram eru allar ámóta langar, fjögurra til sex mínútna lestur. Þessi bók Guðrúnar Karls Helgudóttur biskups  tekur á hinu hversdagslega í lífi mannsins. Hún talar beint til okkar í amstrinu, því er titillinn lýsandi, höfundur horfist í augu við okkur og spjallar, með hjálp hins heilaga orðs, við okkur um þann veruleika sem blasir við hverri manneskju í hverri viku; á hverjum degi, hverja stund.

Samhliða bókinni er askja með spjöldum sem eru með kjarna hverrar hugleiðingar og viðeigandi ritningarstað. Þannig aukast notkunarmöguleikar bókarinnar til muna, það er hægt að leika sér með samspil bókar og spjalda á margvíslegan hátt.

Þetta er vel heppnuð bók; vel heppnað verkefni. Guðrún er ekki að reyna að hafa vit fyrir okkur heldur slæst hún í för með okkur, er með okkur i augnhæð. Á þann máta er hún að liðsinna okkur í lífsglímunni; bæði í smáum sem stórum verkefnum.

Guðrún hefur lag á að láta lesandann finna að hann er ekki einn í veraldarbaslinu – það er jú alltaf gott að vita að fleiri eru að glíma við það sama og maður sjálfur.

Stíll Guðrúnar er þannig að maður finnur fyrir því að hún vill létta undir. Hún er skiljanleg og skýr. Textinn er nokkuð í stíl við predikunarstíl biskups; henni er í mun að fólk skilji sig og erindi sitt.

Vel heppnuð bók fyrir okkur öll. Skálholtsútgáfan gaf út árið 2020.