Þú ert frábær

Afskaplega hugljúf saga eftir Max Lucado, myndskreytt af Sergio Martinez – myndirnar eru reyndar svo fallegar að það má una lengi við að horfa á hverja og eina. Boðskapurinn er tær og góður. Það merkilega við boðskap bókarinnar – sem ekki verður rakinn hér svo engu sé spillt – er að hann á erindi við hvert einasta barn. En hann á líka, nú á öld samfélagsmiðla, ekkert síður erindi til þeirra sem eldri eru.

Þessi saga er frábært dæmi um það hvernig hægt er að koma kjarnanum í boðskap Jesú Krists áfram án þess nokkurn tíma að nefna meistarann frá Nasaret og heldur ekki Guð (ekki að það sé neitt keppikefli í sjálfu sér). Þú ert frábær er líka svo ótrúlega valdeflandi saga, bæði fyrir börn og fullorðna.

Mörgum er illa við að skipta bókmenntum upp í barna- og fullorðinsbókmenntir. En það er nú engu að síður sterk hefð fyrir því að það sé gert, þessi saga er einstaklega gott dæmi um að slík skipting er fjarstæða.

Lestu þessa sögu með barninu þínu og barninu í þér. Þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Sagan er fyrir alla frá 5 ára aldri til 115 ára.

Séra Guðmundur Karl Brynjarsson þýddi á gott mál, setningar eru hnitmiðaðar og auðveldar öllum. Þú ert frábær kom út hjá Skálholtsútgáfunni árið 2017.