Börn og bænir: Lífsgæðabók fyrir fjölskylduna

Þessi bók sem var skrifuð af Sigurði Pálssyni (1936–2019) og myndskreytt af Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur er afskaplega falleg og notadrjúg. Maður sér hana fyrir sér fylgja eigandanum alla ævi. Gert er ráð fyrir því í bókinni að hún sé merkt eiganda, þar sé tilgreindur skírnardagur, skírnarvottar, ömmur og afar séu tilgreind og presturinn sem skírir barnið. Þá er þarna lítið ættartré til að fylla út í.

Þar með er í reynd það upptalið sem þessi bók á sameiginlegt með bókum sem við þekkjum þar sem ofangreint er fyllt út og svo gert ráð fyrir áframhaldandi útfyllingum: Um fyrstu tönnina, fyrsta orðið, eitthvað sniðugt sem ég sagði, byrjað í leikskóla og svo framvegis.

Slíkar bækur er prýðilegar og gaman að fylla út í þær og enn meira gaman að fletta þeim síðar, en þetta er dýpri bók – ef svo má segja.

Þetta er bænabók fjölskyldunnar, hér er líka leiðsögn um trúarlegt uppeldi; uppfræðslu. Það er fjallað um signingu, bæn, um sorg, um lífið í ótal myndum. Því er þetta lífsgæðabók. Hún miðlar góðum hugmyndum og gerir ráð fyrir því að börn og foreldrar eða forráðafólk byggi upp fallegt og einlægt samtal um það sem hendir – með boðskap Jesú Krists að leiðarljósi. Þessi bók verður aldrei úrelt og ég sé fyrir mér að barnið sem einu sinni var hafi hana með sér inn í sinn búskap og barnauppeldi þegar þar að kemur – nú eða bara fletti og rifji upp gömlu góðu bænirnar og hollráðin.

Skálholtsútgáfan gaf þessa bók út árið 2009.