Þetta er bók sem ætluð er sem minningarbók barns frá fæðingu til 12 ára aldurs. Einnig er hún gestabók fyrir skírnardaginn.
Bókin er þannig útbúin að þar er hægt að halda til haga minningum og minningarbrotum úr lífi barnsins. Auðar línur eru til þess að skrásetja ýmislegt – bæði viðburðaríka daga með mikilvægum upplýsingum en einnig eitt og annað af léttara tagi.
Í bókinni er að finna margar bænir og vers, hugmyndir eru gefnar að samverustundum. Jólaguðspjallið er þarna, faðirvorið og sagan um miskunnsama Samverjann – svo fátt eitt sé nefnt. Áminning til foreldra um að gæta að æsku barnsins; vernda æskuna. Bent er á leiðir til að bæta nánd, efni til að íhuga saman og áhersla lögð á góð samskipti.
Foreldrum er bent á að taka frá stund fyrir samveru með börnunum á kvöldin – og svo mætti lengi telja. Þetta er eiguleg bók sem varðveitir minningar og stuðlar að kærleika, jákvæðni og samheldni í fjölskyldum.
Þá er ótalið að það er gaman fyrir barnið að eiga þessa bók með útfyllingum þegar fram líða stundir, fletta jafnvel upp í henni þegar þau sem eru börn í dag eru sjálf orðin foreldrar – „á morgun“.
Bókin er gefin út af Skálholtsútgáfunni og Þjónustumiðstöð Þjóðkirkjunnar. Texti og hugmyndavinna var í höndum kaffihópsins Sippóru en Halla Sólveig Þorgeirsdóttir myndskreytti og sá um grafíska hönnun.