Maður nokkur á í erfiðum veikindum og veit að hann á skammt eftir ólifað. Það er hjartað sem er að gefa sig en hann er klár í kollinum. Hann langar til að gera upp líf sitt og velur að gera það með þeim hætti að skrifa syni sínum bréf. Stráksi er bara sjö ára og því þarf faðirinn, presturinn John Ames, að vanda orð sín sérstaklega. En hann langar að gera syni sínum grein fyrir lífshlaupi sínu, lífsskoðun sinni, uppruna, umhverfi – svo strákur fái betur skilið sjálfan sig og fjölskyldu sína.
Þessi saga er sem sagt bréf frá föður til sonar – mörg bréf réttara sagt sem ætluð eru syninum til lestrar, síðar – þetta síðar er mikilvægt. Bréfritari er prestur í þriðja lið, afinn barðist meðal annars í Þrælastríðinu, var stríðsmaður til orðs og æðis en ætíð maður Guðs – eða hvað? Maður réttlætis en boðar fleira en himnaríki. Faðir bréfritara er mótaður af ofsa afans, verður friðarsinni og nánast meinlætamaður. Gefur frá sér – og reyndar öðrum ef út í það er farið …
Út frá þessum uppruna reynir bréfritarinn að skilgreina sjálfan sig, skilja sjálfan sig og stöðu sína í veröldinni. Hann hefur gengið í gegnum raunir en líka öðlast ást og hamingju. En stendur nú frammi fyrir dauðanum. Hvað gerir maður þá? Hvað segir maður þá? Og hverju er helst frá að segja?
Það dylst engum að þema sögunnar, fjölmörg tákn og myndmál, tungutak á löngum köflum, er biblíulegt. Við erum undir náð Guðs komin. Náðin er kraftur sem ber okkur áfram þegar þrengir að og vissan um náðina afl þeim sem nálgast endalok jarðlífsins. Fyrst og fremst er náðin þó hið milda verkfæri Guðs.
Höfundur Gilead er Marilynne Robinson (f.1946), bandarískur rithöfundur sem hefur ritað skáldsögur, smásögur og fjölmargt annað efni, svo sem fræðilegar ritgerðir um guðfræði og bókmenntir. Hún er með doktorsgráðu í enskum bókmenntum og fjallar ritgerð hennar um Hinrik VI, annað leikritið, eftir William Shakespeare, sem verður að teljast áhugavert ritgerðarefni. En þegar hún vann að þeirri ritgerð fékk hún djúpan áhuga á eldri textum og varð það enn til að skerpa áhuga hennar á trúarlegum textum Biblíunnar. Robinson er margverðlaunuð og hlaut til dæmis Pulitzer-verðlaunin fyrir Gilead.
Þessa mögnuðu sögu, sem er full af hlýju og húmor, en um leið áminning um samkennd og mikilvægi samfélags, þýddi Karl Sigurbjörnsson biskup af mikilli natni og skilningi á viðfangsefninu. Bókin kom út hjá Skálholtsútgáfunni árið 2018 en sagan kom fyrst út 2004.