Gimsteinninn - Sælir eru friðflytjendur

Í þessari bók, Gimsteinninn sem hefur að undirtitli  Sælir eru friðflytjendur, er höfundurinn séra Þorvaldur Víðisson (f.1973) í raun að tala við lesandann. Stíllinn er þannig látlaus og tær, maður á mann – sem skapar traust og nánd.

Eins og titillinn ber með sér, með vísun í sæluboð Krists, er friðurinn til umfjöllunar og veitir víst ekki af að skerpa á þeim málstað. Vitaskuld eru það orð frelsarans sem eru útgangspunktur þessarar bókar; þessa spjalls. Fagnaðarerindið sem kirkjan flytur og sem hefur sýnt sig að vera í gegnum árin sígildur boðskapur um frið og þar af leiðandi betra mannlíf á jörðu. Það er einnig gleðilegt hvernig höfundur skilgreinir erindi friðarins vítt og sælu friðflytjenda því víðtæka

Ritningarstaðir varða leiðina, eru hinir eiginlegu gimsteinar, útlegging er skiljanleg öllum og fá orð notuð. Þannig er bókin í eðli sínu það sem stundum er kallað „léttlestrarbók“ – en það dregur þó hvergi úr fegurð boðskaparins, aðkallandi erindinu eða dýpt spekinnar.

Mögulega gætu fermingarfræðarar nýtt sér þetta rit á tímum þar sem ungdómurinn er sagður hafa takmarkaða þolinmæði fyrir löngum textum. Eins er hægt að sjá fyrir sér að bókin geti nýst í biblíulestrarhópum til þess að brúa bilið frá ritningu yfir í hið daglega líf; gæti þar komið til eins og umræðuvaki, hver síða, kveikja að spennandi samtali. Þetta er sem sagt afskaplega gefandi og aðgengileg bók.

Skálholtsútgáfan gaf út 2024.