Þetta er skemmtileg barnasaga með fallegum boðskap. Þegar litum rigndi er eftir Roy Etherton en stórskemmtilegar myndirnar eru eftir Julie Park. Þetta er saga sem fullorðnir ættu að lesa með börnum sínum, svona frá fjögurra ára aldri en líka saga sem krakkar sem sjálfir eru læsir geta haft mjög gaman af. Sagan er ansi hreint fjörleg og söguefnið nokkuð óvænt. Þetta er ævintýri sem gerist í nútímanum. Sagan er af þeirri gerð að hún hittir börn beint í hjartastað, ekki síst vegna myndskreytinganna sem eru frábærar og ævintýralegs söguþráðar. Sem að sjálfsögðu endar vel.
Fullorðnir geta líka lært af og tekið til sín efni og boðskap sögunnar. Því öll finnum við okkur á einhverjum tíma í afar gráum hversdagsleika og að okkur finnst tilbreytingarsnauðu lífi.
Þótt svo boðskapur sögunnar sé gerður nokkuð skýr af höfundi býður hún upp á fjölbreytta túlkunarmöguleika sem má leika sér með og ræða um við börnin. Og það ber aldrei að vanmeta innsýn og túlkunarhæfni barna – sem er yfirleitt frjáls og óbundin.
Séra Hreinn Hákonarson þýddi þessa bók og er hún svo sem vænta mátti á fallegri og auðskiljanlegri íslensku. Skálholtsútgáfan gaf út árið 1999.