Hundrað og þrjú ráð: Gagnlegar ráðleggingar úr Biblíunni

Fólki hættir til að tala um Biblíuna eins og eina bók, svona eins og þegar talað er um ljóðabók eftir Gerði Kristnýju eða skáldsögu eftir Yrsu. En vitanlega er hún ekki ein bók heldur margar, safn bóka; rita, bréfa, ljóðmæla. Í ofanálag vilja sumir meina að þessi „bók“ eigi ekkert erindi inn í nútímann. Fólk sem þannig talar heldur að:

  a) nútíminn sé eitthvað sérstakur – sem er rangt.    b) að það viti eitthvað um tímann – sem er enn vitlausara.

Biblían er full af fróðleik, visku, sögum, ljóðum, sagnfræði og svo fjölmörgu sem er alltaf í gildi – sumt í henni er vissulega algjörlega fráleitt þegar það er ekki lesið í réttu samhengi.

Í bók sinni Hundrað og þrjú ráð: Gagnlegar ráðleggingar úr Biblíunni til að lifa góðu lífi leggur séra Petrína Jóhannesdóttir upp með það að leita í ritasafninu Biblíunni eftir ráðum og reglum sem eiga enn við í dag og geta nýst okkur vel í eigin daglega lífi. Það er kunnara en frá þurfi að segja að við Vesturlandabúar, velflestir, byggjum lög okkar, reglur og fjölmörg gildi á boðskap Biblíunnar og siðferði samfélags okkar mótast mjög af þeim gildum sem finna má í ritasafninu sívinsæla.

Petrína leggur sérstaka áherslu á að varpa ljósi á hið jákvæða og góða í ráða- og reglusafni Biblíunnar og með þeim dæmum sem hún tekur nær hún afar vel að sýna okkur hve uppbyggjandi ritningin er og hversu gagnleg hún getur verið til vaxtar og þroska einstaklingsins. Petrína nær að sýna okkur að ráð og reglur þurfa ekki að vera úreltar þótt þær séu komnar til ára sinn.

Margar frásagnir Biblíunnar – og er þá sama hvort við leitum í Gamla eða Nýja testamentið – eru fullar af lífspeki og heilræðum; heilnæmum ráðleggingum. Fyrst og síðast er það auðvitað kenning Krists sem þar stendur fremst, en einnig er fjársjóði að finna í ritum eins og Síraksbók, Mósebókunum, Sálmunum, Orðskviðunum og svo mætti lengi telja.

Petrínu tekst einstaklega vel að tína saman í þessa bók og það getur hver einasti maður fundið ráð, lífsreglur og leiðarvísa um lífið í gegnum þessa samantekt Petrínu. Við þurfum ekki að velta því fyrir okkur hvað er regla og hvað er ráð – allt er þetta vel meint og við finnum í hjartanu hvað á við hvenær og hvernig það getur orðið til hjálpar.

Skálholtsútgáfan – Kirkjuhúsið gaf þessa bók út árið 2023.