Hér má finna útdrátt úr grein Dr. Arnfríðar Guðmundsdóttur um siðbótarkonuna Katarínu Zell sem birtist í Ritröð Guðfræðistofnunnar. Katarína Zell (1498–1562) er ein þeirra kvenna sem tilheyrðu fyrstu kynslóð fylgjenda og talsmanna siðbótarinnar á 16. öld. Hún er mikilvægur fulltrúi kvenna sem upplifðu áhrif hinnar nýju siðbótar í eigin lífi og er helst þekkt í gegnum rit sín, sem voru mörg og fengu víðtæka útbreiðslu. Katarína hafði köllun til að verða þjónn Guðs þegar konur gátu ekki orðið vígðir þjónar kirkjunnar. Hún varði kröftuglega rétt sinn til að þjóna Guði og náunganum í ræðu og riti og vitnaði í lykilatriði í guðfræði Lúthers máli sínu til stuðnings. Á meðal þessara atriða var kenning Lúthers um hinn almenna prestdóm, um hjónabandið og guðfræði krossins. Í textum sem hafa varðveist má sjá hvernig lífsreynsla Katarínu hefur mótað guðfræðilegt sjónarhorn hennar. Saga siðbótarkonunnar Katarínu Zell og þau rit sem hún skildi eftir sig sýna svo að ekki verður um villst að hún verðskuldar að vera talin með mikilvægustu leiðtogum siðbótarinnar sem átti sér stað innan vesturkirkjunnar í Norður-Evrópu á fyrri hluta 16. aldar.
